Home / Patient informations / Icelandic / Vaxtarhvatar

Vaxtarhvatar

Vaxtarhvatar eru efni sem líkaminn framleiðir sem einnig er hægt að gefa sem lyf. Vaxtarhvatar örva framleiðslu blóðkorna og hægt er að nota þau í meðferð á MDS. Markmið þessarar meðferðar er að bæta og í besta falli gera blóðgildin eðlileg. Erythropoietin (EPO) örvar framleiðslu rauðra blóðkorna og er notað til að hækka Hb-gildið. Hvítkorna-vaxtarhvatar (Granulocyte-Colony Stimulating Factor,G-CSF) örva framleiðslu hvítra blóðkorna en hjálpar einnig til að örva myndun rauðra blóðkorna. EPO með eða án G-CSF er notað í vissum tilvikum við blóðleysi í MDS. G-CSF er í vissum tilvikum notað í meðferð sýkinga sem orsakast af fækkun á hvítum blóðkornum.

Last update: 2008-08-15 |  Go Back |  Print View