Home / Patient informations / Icelandic / Frumueyðandi lyf
Frumueyðandi lyf eða krabbameinslyf geta verið gagnleg meðferð fyrir ákveðna sjúklinga með MDS. Einkum hjá sjúklingum með aukinn fjölda óþroskaðra fruma í beinmergnum, þegar áhættan á umbreytingu yfir í hvítblæði er mikil og hjá sjúklingum sem komnir eru með bráðahvítblæði. Stundum getur verið nægjanlegt að gefa lágskammta krabbameinslyf sem hægt er að gefa á dagdeild en einnig getur verið nauðsynlegt að gefa hærri skammta af krabbameinslyfjum eins og í meðferð sjúklinga með bráðahvítblæði. Tilgangur þessarar meðferðar er að draga úr fjölda óþroskaðra mergfrumna og þar með bæta blóðgildin eða í besta falli ná eðlilegum blóðgildum.
Last update: 2008-08-15 |
Go Back |
Print View
